Afsökun ? ég veit ekki .. en þetta er mitt líf og ég ein tek ákvarðanir sem snerta mitt líf, og þar sem að ég er óvirkur Alki ætti ég að þekkja þetta, minn bati "lettingur" er undir mér einni komið. Ég verð að taka ábyrgð á minum gjörðum og vinna ur þeim eins vel og ég get !
En eins og ég vissi að þá yrði þessi dagur erfiður þetta er bara eins og þynnka ... eins og ég hafi vaknað upp eftir 2 daga allhressilegt djamm !! Og hvað gerir maður ?? Ekki þíðir að vorkenna sjálfum sér og fá sér "afréttara" "smá nart í óhollt" NEI ég ég verð að slá mig untan undir og finna mér eithvað að gera svo að ég sökkvi ekki í hugsanir. Og þar sem að ég er heimavinnandi þá er til svo mikill DAUÐUR tími og dauður tími fær mann til að hugsa um mat og þá fer maður að trúa því að maður sé virkilega svangur og leitar í eithvað rangt .. Þetta má ekki gerast ég ættla mér að komast upp úr þessu það gerir það engin fyrir mig !! Það var ég sem að bætti þessu 19 kg á mig og ég ein tek þau af mér það þíðir ekki að kenna neinum um þetta. Enginn bað mig um að falla á þá braut að drekka og dópa nei ég fór útá þessa braut ein og óstudd! Og þar að leiðandi var enginn sem að leiddi mig úti sjóppu til að kaupa sætindi og sukk .. ! nei ég gerði það líka ein og óstudd! Andlegahliðin min hefur verið mikið upp og niður og sjálfsálit er eithvað sem að ég þekki ekki .. Mig langar ekki að vera svona!! Mig langar að geta notið mín og verið sátt við sjálfa mig , gengið um í flottum fötum og bara verið stolt af því sem ég hef afrekað
Vá er ég kannski farin að bulla í hringi ?? Ég verð að segja að þetta er í fyrsta skipti sem að ég blogga og finna að ég fæ útrás við þetta
hihih ættla að segja þetta gott .. og skella mér út í labbitúr
Kannski að ég verði bara virkari fyrir vikið
Yfir og út
En ég verð bara að takast á við þetta eins og allt annað. Vikan var í þokkabót frekar brösótt ... upp og niður, fórum á broadway á laugardagin og vá hvað þetta var hrikalega góður matur ummmmhhhh *slurp* var svo hálf lasin sunnud og mánudag
og borðaði þar að leiðandi ekkert... ekki gott en ákvað að ég geri næstu viku bara betur en þess.. þið getið ekki ymindað ykkur hvað ég er búin að vera lengi pikka þetta ... og strax komin með þreyting í hendinda þannig ég ættla ekki að hafa þetta langt, lofa að um leið og hendin er komin i gang aftur að skrifa meira
En ættla að bæta inn að í dag var vigtun og það fóru -700gr
og ég ættla mer ekki að kvarta bara vera sátt við að eithvað er að hverfa af mér .. Þannig að það er farið 8,8 kg og plúsin við allt var það að ég hef eithvað ruglast á talningunni við vigtanirnar þetta var sem sé vigtun nr. 7
en látum þetta gott heita er farin að láta Völu mína pína mig meira ... (krukl í öxl)
yfir og út
En ég veit að með þessu áframhaldi verð ég sko orðin heldur betur flott í sumar
En já í gær var 7 vigtunin og það fór 1,3 kg sem sé á 7 vikum er farið 8,1 kg og ég verð að segja á maður ekki að vera nett sáttur við það eða ??? Jú ég held það. Bara 10,9 kg í land hrikalega hlakkar mig til að fara niðurfyrir 70kg múrin
Í minni niður sveiflu sagði ég við manninn minn í gær " sést nokkuð á mér að ég sé búin að missa 8,1kg" hahaha hann þurfti nu ekkert að segja ég las það bara á andlitinu á honum
Rosalega getur maður verið vitlaus hihihihi. Eins þegar ég og mamma vorum að ræða þetta í gær sagði hun við mig finnuru ekki mun á fötonum þínum?? Var orðin það skelfileg að ég átti bara einar buxur sem ég gekk í .. íþróttabuxur og gat samt TROÐIÐ mér í aðrar kaus samt að nota þær sem allra minnst. En í dag þá eru þessar síðarnefndu buxur komnar á hilluna þær tolla ekki upp um mig hihihi já spurning hvað maður getur verið vitlaus
En þegar yfir allt er litið get ég ekki verið ósátt við þetta. Jæja farin á fund ....
En já ég er svo nokkuð spræk þessa dagana.. er farið að hlakka til helgarinnar, ég mamma og systa ættlum að taka daginn snemma og fara á búðarrölt á laugardeginum. Stefnan er tekin á að reyna að finna sér eitt stykki buxur fyrir kvöldið ... Svo maður verði nu smart
Mataræðið er bara eins og það á að vera nema hvað ég svindlaði á föstud kvöldið og fékk mer mitt uppáhald KFC en viti menn það var ekki eins gott og það á að vera, þannig ég græddi ekkert á því .. pifff. Þá veit ég það bara hihihi. Dagurinn i dag er búin að vera frekar erfiður
ég sofnaði um 22 í gær gjörsamlega búin að þegar klukkan byrjaði að góla kl 7 í morgun langaði mig svoooo að fá að sofa aðeins lengur, kom mer samt framúr um 7.15 og er búin að vera svo drusluleg, hausverk, fætur og hendur við frostmark og æjilega sibbin eithvað
vona að morgundagurinn verði eithvað betri .. Langað líka að óska mömmu til lukku með þennan glæsilega árangur ... konan á bara 4 kg í land 21kg farið .. þessi kona er hetjan mín úti gegn
Jæja er farin að sinna grísonum minum og fá mér eithvað að narta í
Yfir og út
ég er bara ekki að trúa þessu hihi!! sem sé á 5 vikum eru farin 6,8 kg jibbbiiii
12,2 eftir í land.. ég er bara ekki að trúa þessu. Ég var búin að reikna með kannski 400-800 gr ekki meira en nei nei 1,4 takk fyrir
já ég er nú bara heldur betur stolt af mér jibbí vitið ég er að spá í að hafa þetta ekki langt [verð að ná að jafna mig hehehehe] ættla að kikja á blogg rúnt og svo í s-þjálfun 
En já annars er allt bara 100 prósent nema í gær já hhehehe veit svo sem ekki afhverju það stafar en eftir matin settist ég niður en stóð fljótt upp og rétt náði inná bað og losaði allt.. takk fyrir og ég sem er manneskja sem á virkilega erfitt með að æla ?
en var bara spræk eftir það og fékk mér þá bara 150gr af grænmeti og eitt ristabrauð
og það hélst niðri, sem betur fer
En já annars er ég bara merkilega spræk, pantaði miða á Tinu Tribut í dag fyrir mig systu og mömmu farið verður 24 mars...verður glimrandi stemming
hehe Allar á Þeim danska
En jæja ættla að fara að taka til Yfir og út 
vorum að skoða hringi áðan og ég er hreinlega friðlaus
En annars dagurinn var súper góður og matur 100 prósent. Hlakka til að komast aðeins út í kvöld og hitta gellurnar og fara á fund ... vá ég bara já hahahahahhah er orðlaus yfir þessari hamingju
en allavegana segji ég bara góða helgi og gangi ykkur vel ........ Yfir og út
og það bara að eithvað fari gerir mig svo glaða
þannig 5,4kg á einum mánuði farið
já ég er sátt ... ættla bara að segja að sjá hvað þetta gerist hratt fær mig til að hoppa í hringi. Meir að segja Mamma hringdi í mig úr vinnunni til að ath hvernig gekk ... og auðvita var hún SVO stolt af litlu stelpunni sinni
Svo fékk ég rosalega mikið hól frá manninum mínum
Þetta er svo gaman ... En jæja ættla að fara að koma mér með peyjana mina á leikskólan
Fer svo blogg rúnt á eftir
Yfir og út 
mig kvíður ALLTAF fyrir því hehehe en fyrir utan smá kökubita um síðustu helgi þá hefur vikan verið 100 prósent vona bara að vigtin meti eithvað labbi síðustu helgi
hihh En er alveg búin að búa mig undir viðbót á c.a 1-2 kg ... Rósa frænka er líka á næstu grösum ... það eykur á þyngslin lika ... En ég geri þá bara betur í næstu viku
Ef ég á að vera alveg hreynskilin þá er ég bara svo þakklát fyrir hvern dag sem ég á ... þakklár fyrir börnin mín og manninn minn
Ég er virkilega rík og það er það sem mestu skiptir að vera hamingjusöm. Ég hef ekkert leitað í nammi í heilan mánuð og það er yndislegt, orkan er rosalega mikil og vellíðanin er ólýsanleg
Ég er svo staðráðin í að ná af mér þessum kílóum að það er ekkert sem freistar mín , t.d. í dag þá borðaði maðurinn minn "djúsi" borgara fyrir framan mig og mér gæti ekki verið meira saman... .ég vil ekki skipta á þessari svakalegu, frábæru og yndislegu líðan fyrir eithvað skitið nammi eða sukk fæði alls ekki ... það er toppur á tilverunni að líða svona og hafa þessa frábæru orku
En ættla að hætta að blaðra í hringi og fara að fá einn mér einn ávöxt og meira vatn
Kveð ykkur í kút.... Yfir og út 
Ég var búin að plana svo kósý og rómantíska helgi fyrir manninn minn og mig þar sem að kallinn átti afmæli í síðustu viku. Lagði svo mikið á mig við að redda pössun fyrir alla grísina mín og meir að segja baktryggði auka pössun svo að þetta myndi ekki klikka. Við fórum svo af stað í bústaðinn og kallinn alveg grunlaus um hvað ég hefði fyrir stafni, hann var auðvita MJÖG sáttur við konuna sína þegar á leiðarenda var komið. Föstudagskvöldið var frábart og það var heldur betur slakað á grillað,spilað og farið í pottinn
En á laugardeginum var ákveðið að halda af stað í smá jeppaferð "því ver og miður" það vildi ekki betur en svo til að um kl 5 á laugard festum við bílinn eða já hann rann til settist á rassgartið og steinn fór undir hann. Við ákváðum þar að fara að labba af stað og bjuggumst passalega við því að það væri styttra að labba í þá átt sem við vorum á leiðinni í en NEI!! við löbbuðum i c.a 2 1/2 tíma og snerum því við þar sem við fundum ekkert , það var orðið dimmt og við rennandi blaut. Sem betur fer fundum við bílinn aftur og komum okkur fyrir inni honum, botnuðum mistöðina og klæddum okkur úr því allra blautasta. Þarna sváfum við til c.a 8 [ef svefn má kalla náðum kannski 4 tímum] Við lögðum þá af stað aftur á labbið og þá í hina átti, gjörsamlega búinn eftir 5 tíma labb kvöldið áður. Þegar að við vorum buin að labba í c.a 2 1/2 tíma komust við í símasamband og hringdum í 112... Við gengum í c.a 1 kl tíma og þá mættum við Björgunarsveitinni. Þeir komu okkur niðureftir í bústað og VÁ hvað ég var þakklát .. matar og vatnslaus í 24 tíma og 9 tíma labb
Þegar þarna var komið var ákveðið að hafa samband við tengdapabba og mætti hann ásamt fylgdarliði alveg 3 jeppar og 5 auka manns allt í allt. Kallinn skellti lambinu sem við áttu eftir á grillið og eldaði ofaní fólkið og fóru þau svo að leysa bílinn upp... sem betur fer tókst..... Ég var svo kvalin í skrokknum og mjóðminni að mér leið á tíma eins og það væri verið að rífa lærið frá mjöðminni minni
Þannig við ákváðum að koma mér til doksa þegar við komum í bæinn sem tjáði mér að allar vöðvafestur og liðamót veru ílla bólgin og tognuð auk þess sem að ég hef liklegast rifið í lærvöðvan
Þannig ég fékk verkjalyf og svo var farið heim.... Guð hvað ég var ánægð að komast heim. Eina sem að ég hef áhyggjur af er viktuninn á fimmtudaginn
En ég ættla að reyna sem minnst að hugsa um það og bara vera þakklát fyrir að vera hérna ... því það munaði ekki miklu að við hefðum orðið úti þrjóskan í kallinnum bjargaði okkur alveg
Og vá hvað ég elska hann mikið

